03.06.2026 06:29

Árni Friðriksson HF 200 á Eyjafirði

                 Árni Friðriksson HF 200 hélt frá Akureyri i Fyradag eftir góða skveringu hjá Slippnum á Akureyri 

Þar sem að meðal annas var skipið Heilmálað ásamt öðrum tilfallandi slippverkum  og er skipið hið Glæsilegasta 

og ber slippnum vott um góð vinnubrögð i hvivetna myndir Þorgeir Baldursson

                                                     2350 Árni Friðriksson HF 200 Mynd þorgeir Baldursson 

                                                2350 Árni Friðriksson HF 200 Mynd þorgeir Baldursson 

                                    2350 Árni Friðriksson HF 200 Mynd þorgeir Baldursson 

02.06.2026 23:34

Baldur og Herjólfur sameina krafta sína

 

                                    Baldur og Herjólfur við bryggju i Þorlákshöfn mynd þorgeir Baldursson 2026

 

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands.

Fyrirkomulagið verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní.

Þjónusta við samfélagið tryggð

Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum síðdegis í dag.

Vegna erfiðra aðstæðna og óhagstæðs veðurfars hefur lítið mátt út af bregða að siglingaáætlun Herjólfs raskist. Þegar Herjólfur siglir aðeins á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m og/eða ef vindur er yfir 12 m/s en það er ekki óalgengt á þessum árstíma.

02.06.2026 23:09

Hriseyjarferjan Sævar

                   Hriseyjarferjan Sævar á siglingu Hrisey i Bakgrunni mynd þorgeir Baldursson 2 júni 2026

                                  Hriseyjarferjan Sæfari á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 2 júni 2026

                 Hriseyjarferjan Sæfari að koma til hafnar á Árskógsandi mynd þorgeir Baldursson 2 júni 2026

Hríseyjarferjan Sævar - áætlun dagsins

Þriðjudagur, 2. júní 2026

Ferð Frá Hrísey Frá Árskógssandi
7 ferð 07:00 07:20
9 ferð 09:00 09:30
11 ferð 11:00 11:30
13 ferð 13:00 13:30
15 ferð 15:00 15:30
17 ferð 17:00 17:30
19 ferð 19:00 19:30
21 ferð 21:00 21:30
23 ferð 23:00 23:30

31.05.2026 08:24

Mein Schiff 2 i fyrsta sinn á Akureyri

i Morgun kom i fyrsta skipti til Akureyrar Þýska Skemmtiferðaskipið Mein Schiff 2

um borð voru 2894 farþegar og 1092 i  áhöfn Skipið er 315,75 metrar á lengd og 42,3 á Breidd 

skipið er gert út undir fána Möltu og mun  skipið stoppa til kl 19 i kvöld 

                                  Mein Schiff 2 á Eyjafirði i morgun mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026 

                     Mein Schiff 2 á Eyjafirði i morgun Kaldbakur i bakgrunni mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026 


                    Mein Schiff 2 á Eyjafirði i morgun  Akureyri framundan  mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026 

          Mein Schiff 2 á Eyjafirði i morgun  ásamt hafnsögubátnum Seif mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026 

          2955 Seifur flutti Hafnsögumann um borð i Mein Schiff 2 mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026 

               Mein Schiff 2 og hafnsögubáturinn  2955 Seifur mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026

                              Mein Schiff 2 við bryggju á Akureyri morgun mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026

                Mein Schiff 2 við bryggju á Akureyri morgun mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026


             Mein Schiff 2 við bryggju á Akureyri morgun horft út Eyjafjörð mynd þorgeir Baldursson 31 mai 2026
 

 

30.05.2026 09:01

Vestmannaeyjarhöfn fær nýjan Léttir

 Léttir tekinn í notkun í Eyjum

Stefna að og telja sig þurfa einnig aflmeiri lóðsbát vegna sífellt stærri skipa sem koma til Vestmannaeyjahafnar

                              Ekki gafst tími til að klára að mála Létti fyrir fyrstu verkefni hans. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON

 

Vestmannaeyjahöfn keypti í byrjun árs notaðan dráttarbát frá Kanada. Voru þetta fyrstu bátakaup hafnarinnar frá því Lóðsinn var afhentur 1998.

 

Til stóð að mála bátinn og er reyndar búið að grunna hann allan.

Ekki vannst tími til þess klára málningarvinnuna vegna þess að Léttir var strax kominn í verkefni að aðstoða við dælingu á laxaseiðum úr Viðlagahöfn í flutningaskip.

Nýr Léttir er smíðaður 2017 og er í Bureau Veritas klassa.

Hann er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen, 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, með 9 tonna dráttargetu og tvær skrúfur sem auka stjórnhæfni við erfiðar aðstæður. Í  honum eru tvær Volvo Penta vélar, sem saman skila 700 hestöflum. Báturinn er keyptur á rétt rúmar 110 milljónir króna.

 

Njáll Kolbeinsson hjá Vestmannaeyjahöfn segir að höfnin þurfi einn minni bát samhliða Lóðsinum. Léttir er þægilegur í notkun innan hafnar.

„Við erum að fá skip núna sem sækja lifandi lax út í Viðlagafjöru. Við notuðum nýja bátinn fyrir helgi til að tengja rör úr seiðatönkunum yfir í skipið. Lóðsinn kæmist ekki þarna alveg upp í fjöru, hann er það stór og djúpristur. Nýi báturinn er fín viðbót. Það voru lengst af til tveir bátar hérna við höfnina. Hér var annar Léttir en hann fór úr rekstri fyrir um það bil tíu árum fyrir aldursakir,“ segir Njáll.

 

Í Vestmannaeyjahöfn er skylduhafnsaga sem þýðir að hafnsögumaður fer í öll skip sem þangað koma og þegar þau fara. Fram til þessa hefur verið farið með hafnsögumanninn í Lóðsinum en nú sjá menn fram á að fara mun frekar á Létti til að sinna þessum erindum sem mun skila sér í olíusparnaði og minni fyrirhöfn.

Stöðugt stærri skip

Þegar gámaskip, skemmtiferðaskip og önnur stærri skip koma til Eyja hefur Lóðsinn nýst til þess að snúa þeim inni í höfninni.

Staðreyndin er hins vegar sú að skipin sem koma til Eyja verða stöðugt stærri og aðkallandi sé að fá stærri dráttarbát í stað Lóðsins. „Við viljum kaupa nýjan bát helst frá Damen. Ef það verður byggð hér stórskipahöfn úti á Eiði, sem fer vonandi að gerast, þá munu koma hingað enn stærri skip.

Þá verðum við að hafa öflugri bát en Lóðsinn,“ segir Njáll.

 

Lóðsinn var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1998. Hann er því 28 ára gamall á árinu.

Hann er með rúmlega 2.000 hestafla Mitsubishi vél. Toggeta hans er 28 tonn en til samanburðar er Magni sem Faxaflóahafnir eiga, með 6.900 hestafla Caterpillar vél og 85 tonna dráttargetu áfram og 84 tonna aftur á bak.  Njáll segir að draumurinn sé að Vestmannaeyjahöfn fái í stað Lóðsins  dráttarbát að svipaðri stærð en mun öflugri og með 50-60 tonna dráttargetu.

Ljóst er að nýr bátur af þessu tagi kostar mörg hundruð milljónir króna og þyrftu að koma til samningar milli ríkisins og Vestmannaeyjabæjar

um kaup á slíku tæki.

29.05.2026 15:25

Átta sóttu um stöðu Forstjóra Hafró

                    Þórunn Þórðardóttir HF 300 á milli Kirkjutúrna Akureyrarkirkju mynd þorgeir Baldursson 

 

Atvinnuvegaráðuneytinu bárust átta umsóknir um stöðu forstjóra Hafrannsóknastofnunar en umsóknarfrestur rann út 22. maí.

Í lok september auglýsti ráðuneytið embættið laust til umsóknar.

Fór þáverandi forstjóri stofnunarinnar á fund ráðherra og óskaði eftir því að þurfa ekki að sitja út skipunartíma sinn.

Að öllu óbreyttu hefði hann átt að gegna stöðu forstjóra fram til 31. mars 2026.

Tók Eggert Benedikt Guðmundsson tímabundið við starfi forstjóra.

Í samtali við mbl.is á þeim tíma sagði Þorsteinn að auglýsingin hefði komið flatt upp á sig.

Skammt er síðan skýrsla var birt sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið og eru þar margar og víðtækar tillögur gerðar

að endurbótum. Af skýrslunni má ráða að miklar brotalamir séu í stjórnun stofnunarinnar og er í því samhengi bent á reynsluleysi forstjóra, óljósa forgangsröðun verkefna og ágreinings innan vinnustaðar.

29.05.2026 06:25

Hótel Lodge á Grenivik

                                        Grenivikurhöfði ásamt nýja hótelinu mynd þorgeir Baldursson 

Verktakar eru nú að störfum við lúxushótelið Höfða Lodge við Grenivík. Greint var frá því á dögunum að breski auðmaðurinn Russ DeLeon hefði eignast hótelið að fullu eftir að Íslendingar seldu hlut sinn í félaginu. Menn á hans vegum eru væntanlegir til landsins í næstu viku og þá má búast við að framkvæmdir fari á fullt á ný.

„Herbergin komu tilbúin en það er eftir vinna við sameiginlegu rýmin, eldhús, anddyri og fleira. Þá á eftir að koma upp kerfum og vinna að tengingum. Ég tel að það séu svona 10-20% af verkinu eftir,“ segir Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.

„Þetta er stór og mikil bygging og allt tekur sinn tíma. Ég held þó að planið sé að klára á þessu ári, hvort sem þeir ná að opna í haust eða síðar,“ segir hann enn fremur.

Miklar tafir síðustu ár

Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hafa miklar tafir verið við byggingu hótelsins, en upphaflega var stefnt að opnun árið 2023. Kostnaður fór langt fram úr áætlunum fyrri eigenda.

Hótelið er byggt á Þengilhöfða skammt frá Grenivík. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn frá herbergjum hótelsins, sem verður 6.000 fermetrar að flatarmáli, með 42 herbergjum og 28 starfsmannaherbergjum.

„Staðurinn er alveg magnaður. Ég hef farið upp eftir með fólki frá mörgum löndum, á öllum tímum árs og í öllum veðrum, og það verða allir jafn dolfallnir yfir staðnum. Ég held að þetta hótel geti orðið vinsælt,“ segir sveitarstjórinn.

Heimild mbl.is 

mynd þorgeir Baldursson 

27.05.2026 23:16

Vilhelm Þorsteinsson EA11

                      Vilhelm Þorsteinsson EA11 við bryggju i Krossanesi mynd þorgeir Baldursson 

26.05.2026 21:25

Góð verkefnastaða frammundan

                                             Sólberg ÓF 1 og Árni Friðriksson HF 200 I Slippnum á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 

Togarinn Sólberg ÓF er í slipp í flotkví Slippsins Akureyri en skipið fór upp í kjölfar þess að Árni Friðrikssyni, rannsóknarskipi Hafrannsóknastofnunar, fór niður eftir umtalsvert viðhald.

Páll Kristjánsson framkvæmdastjóri Slippsins segir flest af verkefnum fyrirækisins nú vera hefðbundin slippverkefni en minna sé um nýsmíði.

Sólberg fer í góða yfirhalningu en Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri segir verkefnin vera fjölbreytt.

„Það er allt frá vinnu við þvott, málningu, stálbreytingar, viðhald vinnslubúnaðar og margt fleira,“ telur hann upp, en mjög stór hluti af starfsemi fyrirtækisins snýr að þjónustu við íslensk og erlend fiskiskip.

Ný færavinda í notkun

Páll segir að það sem helst hafi breyst nýlega hjá Slippnum Akureyri sé tilkoma nýrrar kynslóðar færavindu, DNG R1.

Hún leysi af hólmi DNG C6000 færavindu sem framleidd hefur verið frá árinu 1995 en erfiðara hafi verið orðið að fá fyrir hana réttan rafeindabúnað.

„R1-vindan sem nú er framleidd er byggð á nýjustu tækni í rafeindabúnaði og er því tilbúin til næstu ára og vonandi áratuga,“ útskýrir Páll. Sé litið fram í tímann telur hann að verkefnastaðan sé heilt yfir nokkuð góð.

Heimild mbl.is 

Mynd Þorgeir Baldursson 

26.05.2026 21:20

Varskipið Þór á milli turna

                               Varskipið Þór var hérna vi bryggju i siðustu viku og þá náðist þessi skemmtilega mynd þorgeir Baldursson 

20.05.2026 23:33

Eigendur Snekkjunnar stefna Rikinu Og Gæslunni

                               Lúxussnekkjan La Datcha á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 2026

 

Eigendur lúxussnekkjunnar La Datcha, sem siglir undir fána Panama, hafa stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur en snekkjunni var í mars meinað að leggjast að bryggju á Akureyri vegna tengsla hennar við Rússa. Landhelgisgæslan vísaði skipinu þá úr íslenskri landhelgi.

Aðalkrafa eigendanna er að ákvörðunin um að meina skipinu að leggjast að bryggju á Akureyri verði felld úr gildi en varakrafan að ólögmætt hafi verið að vísa skipinu úr íslenskri landhelgi.

Gunnar Sturluson, lögmaður eigenda snekkjunnar, segir það undir í málinu hvort þvingunaraðgerðir íslenskra stjórnvalda nái til snekkjunnar.

Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt

Frétt af mbl.is

Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt

Reynir á afturvikra lagasetningu

„Útgerðin þarf að fá úr því skorið hvort þetta standist. Þarna reynir á afturvirka lagasetningu en Evrópusambandið setti reglugerð í apríl sem miða við atburði sem gerðust í febrúar, þannig að þeir létu reglurnar gilda afturvirkt. Þetta var ekki innleitt á Íslandi fyrr en enn síðar. Síðan eru svona tæknileg atriði sem eru undir í málinu,“ segir hann.

Gunnar segir t.a.m. reglugerðina sem um ræðir mæla fyrir um hafnarbann fyrir skip sem falla undir hana en Landhelgisgæslan hafi gengið lengra og vísað skipinu úr íslenskri landhelgi.

„Þetta snýst m.a. um að Landhelgisgæslan tók ákvörðun um að vísa skipinu úr íslenskri lögsögu á grundvelli reglna um þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi og við teljum að ákvörðunin sem gæslan tók sé ólögmæt. Við erum m.a. að krefjast þess að hún verði felld úr gildi.“

Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í

Frétt af mbl.is

Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í

Ótilgreint tjón blasir við

Eru fjárhagslegir hagsmunir undir?

„Það kemur í ljós. Ég get ekki tjáð mig um það.“

Það hlýtur samt að hafa orðið eitthvert tjón, er það ekki?

„Það blasir við.“

Þú getur ekkert slegið á umfang þess?

„Nei.“

Gunnar segir málið hafa hlotið flýtimeðferð fyrir héraðsdómi og að næsta fyrirtaka verði 1. júní.

Áttu von á umfangsmikilli aðalmeðferð þegar að því kemur eða er þetta ekki tiltölulega einfalt?

„Það eru náttúrulega nokkuð flókin lögfræðileg atriði sem eru til skoðunar.“

Heimild Morgunblaðið 

myndir Þorgeir Baldursson 

18.05.2026 18:18

Fyrsta stóra skemmtiferðaskipið til Akureyrar

I morgun kom Norwegian Star til Hafnar á Akureyri og um borð voru 3300 farþegar og 1000 manna áhöfn 

þetta er fyrsta stóra skemmtiferðaskipið sem að kemur hingað 2026 og greinilegt að þetta hefur viðtæk

áhrif á ferðaþjónustuna og bæinn sem að yðaði af lifi þegar ég skrapp i miðbæinn i dag 

                                           Norwegian Star við bryggju á Akureyri i morgun mynd þorgeir Baldursson 2026

14.05.2026 15:41

LataLante á Akureyri

                           Franskt Rannsóknarskip i höfn á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 13 mai 2026

                                 Franskt Rannsóknarskip i höfn á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 13 mai 2026

Franska Rannsóknarskipið LantaLante leiggur hérna á Akureyri og ekki er sagt hversu lengi skipið mun stoppa

L'ATALANTE (IMO: 8716071) is a Research/Survey Vessel and is sailing under the flag of FRANCE.

Her length overall (LOA) is 84.6 meters and her width is 15.85 meters.

13.05.2026 06:31

Þórunn Sveinsdóttir Ve 401

                                   2020 Þórunn Sveinsdóttir Ve 401 mynd þorgeir Baldursson 

10.05.2026 23:40

Skenmmtiferðaskipin i sumar

                 Sölubásar klárir fyrir túrista þegar skemmtferðaskipin koma mynd þorgeir Baldursson 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 355
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 1667
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 3007524
Samtals gestir: 73426
Tölur uppfærðar: 4.6.2026 03:20:39
www.mbl.is